|
|
07.05.2009 09:47:38 / Silla
í gangi hjá mér...  Ég mæti hingað í Odda alla virka daga og þykist vera voða dugleg  Í dag er ég til dæmis í engu stuði til að byrja, og það er ekki gott!!!  Pabbi minn flutti aftur til Noregs í gær, og ég held að lillinn minn verði illa niðurbrotinn þegar hann fattar það almennilega,  en þeir verða bara að vera duglegir að tala saman á Skype  Mig langar í kisu Leiter
»
04.05.2009 12:00:15 / Silla
Er það ekki barasta málið? Þegar maður á að vera að skrifa ritgerð, þá byrjar maður aftur að blogga  Svo um leið og ég er búin að pósta þessu, þá kemur Krissi hlaupandi og lemur mig fyrir iðjuleysið, hehe. Við erum saman hérna í Odda. Hann er samt í einhverju snobbi inní masterskompu!!!!!!!  Af mér er mest lítið að frétta. Ég er búin að vera frekar dugleg að mæta í skólann og vinna að ritgerðinni minn, en hef samt ekki verið að nenna að mæta um helgar, enda engin pressa lengur þannig séð!!!  Þannig er, að úr því að ég var svona lengi að drullast til að byrja á ritgerðinni minni, þá næ ég ekki að klára hana og útskrifast 20.júní!!!! Maður þarf nefnilega að skila henni fyrir 11.maí ef maður ætlar að útskrifast.    Ég hefði kannski alveg getað klárað, en það hefði verið ávísun á lélega ritgerð, og við viljum það ekki!!! Ég er samt að klára núna, vonandi í maí, og fæ tilskylda pappíra uppá að ég sé búin, en brautskráningin mín verður ekki fyrr en í febrúar  Ég er búin að sækja um í mastersnám, og þetta á ekki að hafa nein áhrif á það, sem betur fer.  Ég sótti um í bókasafns-og upplýsingafræði, í skjalastjórnun  Hef alltaf sagt það að draumadjobbið mitt væri að fá bunka af blöðum sem þyrfti svo að raða eitthvert, svo ég geri ráð fyrir því að þetta sé draumanámið mitt...  Hvað haldið þið? Jæja, best að halda áfram að lesa og skrifa. Vona að ekki allir séu hættir að kíkja hér inn VIÐBÓT: Var að fá bestu fréttir í heimi geimi   
Ég átti að skrifa aðra styttri ritgerð þegar hin er búin, en ÉG ÞARF ÞESS EKKI!!!!!!!!!!
Vúúúúúúúúúúhúúúúúúú     
Leiter
»
26.03.2009 22:22:00 / Silla
... er mikið að gera  10-11.30 skóli + smá kökuboð fyrir bekkjarfélagana 12-13.30 finna mér jakka og kannski föt í Kringlunni 13.30 sækja Söndru 14.30 klipping 16.00 sækja soninn 16.17.30 gera mig ógó sæta 17.30 skila syninum í pössun 18-20 borða á Ítalíu með tengdafjölskyldunni 20-00 partý á Sólon Vá, eins gott að gleyma engu!!!    Silla át
»
26.03.2009 09:08:39 / Silla
... er ég orðin þrítug  Þegar ég vaknaði í morgun var ég: -ekkert grennri  -mjög svipuð í útliti  restin er ekki komin reynsla á, hehe  Silla át, í fyrsta sinn 30
»
25.03.2009 09:18:13 / Silla
...verð ég þrítug!!!  Ég treysti því að ég muni vakna í fyrramálið eins og ný manneskja!! - grennri - gáfaðari - skipulagðari - samviskusamara - fallegri - orkumeiri (margt af ofantöldu verðir til þess að ritgerðarsmíð verður pís of keik)  Bara neim itt, á morgun verður öldin önnur  Silla át, í síðasta sinn 29 ára  
»
19.02.2009 19:47:23 / Silla
svoooooo mikið, að ég ætla að blogga smá.  Ég hef samt ekkert merkilegt að blogga um frekar en hinn daginn. Mætti á mína fyrstu æfingu áðan, spurning um að fara að taka aðeins á því. Sjáum til hvernig það fer.  Ég er að vesenast í skólanum, og ætti að útskrifast í vor, vonum bara að það standist, hehe, er sem sagt EKKI ENN búin með hel..... ritgerðina!!!  Og núna er ég í 3 öðrum kúrsum líka, og hef ekki mikinn tíma fyrir ritgerðina, mæ bad! Vá, veit varla hvers vegna ég er að reyna að blogga e-ð, það gerist bara ekki neitt, só sorrí sko. En jæja, man kannski e-ð annað á eftir, eða bara seinna. Smell jú leiter
»
08.01.2009 12:35:31 / Silla
Stolið frá Önnu, sem stal þessu annars staðar, hehe  Nenni ekki að skrifa neitt svo ég set bara inn nokkrar myndir af litla manninum mínum, þá er ég að meina Sigurði en ekki Denna, hahaha   Janúar Fyrsta koppaferðin  Febrúar Grasker á öskudag  Mars Mmmm, gákkaegg  Apríl Fyrsta bíóferðin, með Jóhanni Georg á Bubba Byggi  Maí Kominn með bílpróf  Júní Á Spáni  Júlí Í Pollinum á Tálknafirði  Ágúst Kominn á mótorhjól á Grundarfirði  September Lítill daredevil  Október Hjóla með engar hendur  Nóvember Orðinn 3ja ára og gaf duddurnar sínar  Desember Rosa ánægður með stjörnuljós á gamlárskvöld Jebbs, þetta var sonurinn í myndum. Veit ekkert hvenær ég nenni að setja e-ð annað hér inn Bæbb
»
21.12.2008 22:57:55 / Silla
jólakort - tékk  jólagjafir - tékk  jólaþrif - tékk  ritgerð - ekki svo mikið tékk
»
19.12.2008 10:43:41 / Silla
Ég nenni ekkert að blogga. Það les þetta enginn hvort eð er (nema Dandý)
Það eru alveg að koma jól
Ég á allt of mikið eftir af ritgerðinni ennþá
Það er komið fullt af myndur hjá Sigurði, muna að kvitta í gestó hjá honum
Gleðileg jól
hóhóhó
»
27.11.2008 12:24:25 / Silla
Þar sem ég nenni ekkert að blogga, þá stal ég þessu frá bloggi skólasystur minnar... Soldið lang, en mjög skemmtilegt!
Það er sagt að maður eigi að borða eitt epli daglega útaf járninu og einn banana til að fá kalíum Líka eina appelsínu, útaf c-vítamíninu og einn bolla af grænu te án sykurs, til að forðast sykursýki. Svo má ekki gleyma lýsinu sem er náttúrulega allra meina bót. Drekka tvo lítra af vatni alla daga (Já, og síðan að pissa því, sem tekur tvöfaldan tímann sem það tók að drekka það) Á hverjum degi borða jógúrt og eitt skot af LGG út af gerlunum sem enginn skilur hvað gera, en ef þú færð ekki eina og hálfa milljón á dag mun það hafa skelfilegar heilsufarslegar afleiðingar.
Daglega taka inn eina aspirín til að koma í veg fyrir hjartaáfall, og drekka eitt rauðvínsglas í sama tilgangi. Og annað hvítt fyrir taugakerfið. Og einn bjór, sem ég man ekki hvaða gagn á að gera. Ef þú færð þér þetta allt í einu, skaltu gæta þess að eiga einn Red Bull ísskápnum til að drekka daginn eftir, nema náttúrulega ef þú ert þá búinn að fá heilablóðfall. Ef það gerist, muntu ekki taka eftir því. Daglega borða trefjar. Mikið, mjög mikið af trefjum. Þar til þú kúkar heilli peysu. Það á að borða fjórar til sex máltíðir á dag, hollar, fitulitlar máltíðir og ekki gleyma að tyggja hvern munnbita hundrað sinnum. Með smá útreikningi er ljóst að það tekur þig um fimm klukkustundir á dag að borða. Ó, og síðan má ekki gleyma að bursta tennurnar eftir hverja máltíð. Á eftir jógúrtinu og trefjunum, tannbursta; á eftir eplinu, tannbursta; á eftir banananum, tannbursta... Og á meðan þú ert á annað borð með tennur máttu ekki gleyma tannþræðinum og munnskolinu með tilheyrandi gurgli. Best að stækka baðherbergið og setja þar inn hljómflutningstækin þín, því þar áttu eftir að dvelja drjúgan tíma: vatnsþambið, trefjarnar, tennurnar... Síðan á að sofa í átta stundir og vinna aðrar átta plús þessar fimm sem fara í að borða. Þetta gerir tuttugu og eina klukkustund. Þá áttu þrjár stundir eftir, það er að segja ef ekkert sérstakt kemur uppá þann daginn. Samkvæmt könnunum eyðum við þremur stundum daglega í sjónvarp...og ekki gleyma tölvunum!!! En þú hefur engan tíma í svoeiðis, því daglega áttu að fá þér a.m.k. hálftíma göngutúr (Ég tala af reynslu: Snúðu við eftir 15 mínútur, því annars verður hálftíminn að klukkustund).
Síðan verður að huga að vinunum því þeir eru eins og blóm: það þarf að vökva þau daglega. Líka þegar þú ferð í frí. Það er að segja ef þú ferð í frí. Síðan þarf að vera vel upplýstur. Lesa að minnsta kosti tvö dagblöð og eina grein í tímariti til að bera upplýsingarnar saman.
Ah! Síðan er það kynlífið. Kynlíf daglega og þar að auki á það að vera frumlegt og skapandi . Þetta tekur sinn tíma!!! Að maður tali nú ekki um tantra kynlíf!!! Að öllu framansögðu vil ég minna þig á: Það á að tannbursta sig eftir hverja máltíð. Það þarf líka að skúra, þurrka af, þvo þvott, fara í sturtu og vaska upp og áttu kannski hund að auki eða hamstur? Börn?!
Nú reiknast mér til að þetta kalli á um 30 stundir á dag. Eina lausnin á þessum vanda, er að framkvæma eitthvað af þessum atriðum í einu. Til dæmis: Þú ferð í kalda sturtu með opinn munninn og drekkur þannig lítrana tvo af vatni. Þegar þú gengur út úr baðherberginu með tannburstann í munninum nýturðu um leið ásta (tantrískt) standandi með makanum þínum, sem um leið horfir á sjónvarpið og segir þér frá á meðan þú burstar tennurnar. Var ein hendi laus? Hringdu í vinina!!! Og foreldrana!!! Fáðu þér rauðvín (eftir spjallið við foreldrana muntu þurfa á því að halda) eplið getur makinn þinn matað þig á á meðan þú borðar bananann með jógúrtinu. Úffffff! En ef þú átt tvær mínútur eftir , sendu þetta þá á vinina (sem þú þarft að vökva eins og blóm) um leið og þú tekur inn eitt hvítlaukshylki sem er svo gott fyrir... En nú verð ég að hætta því eftir jógúrtið, appelsínuna, bananann, bjórinn, fyrri vatnslítrann, þriðju máltíðina með trefjum, hef ég ekki hugmynd um það hvað ég er að gera og þarf nauðsynlega að komast á klósettið. Aha, ég ætla að nýta tímann og kippa tannburstanum með mér.
Ef ég er senda þér þetta í annað sinn , er það vegna þess að þrátt fyrir að fylgja öllum þessum ráðum er ég samt komin með alzheimer.
»
16.11.2008 12:37:21 / Silla
Síðasta færsla var tileinkuð syninum. Þessi er tileinkuð eiginmanninum. Sá fallegi maður á nefnilega afmæli í dag. Hann er mjög gamall, en samt svoooo unglegur, það er eins gott  Hann fær samt enga veislu, bara fullt fullt af kossum, heppinn!!!  Denni, ég elska þig xxx
»
14.11.2008 13:39:05 / Silla
Já, hefði frekar viljað skrifa þetta í gær, svo dagsetningin væri rétt, en það var bara BRJÁLAÐ að gera í gær.
Sonur minn er orðinn 3ja ára.
Ég er bara ekki að ná því hvað tíminn líður hratt. Hann er orðinn svo stór og sjálfstæður og talar svo mikið og skýrt. Alveg magnað.
En jæja, nenni ekki að skrifa neitt meira. Það koma myndir á barnaland fljótlega
Tjá
»
31.10.2008 09:35:29 / Silla
Það er halló-vín í dag, 31. október. Mér er samt ekki boðið í neitt partý. Mér er aldrei boðið í partý!!! Kannski af því að ég drekk ekki, eða kannski bara af því að ég er svo leiðinleg!!!  Í dag eru slétt 3 ár síðan ég var sett með Sigurð. Hann lét mig bíða eftir sér í 13 daga. Takk kærlega fyrir það sonur sæll!!!  Sandra kom í bæinn í gær. Það er vetrarfrí hjá skvísunni. Sigurður var úúúúber glaður að sjá systir sína.  Það er alltaf eins og þau hafi sést í gær!!! Leikskólinn er lokaður í dag, svo þau eru bæði heima, en Denni fór að vinna. Hann ætlar samt að reyna að hætta snemma og ég vona að það standist, svo við getum gert e-ð skemmtilegt öll saman.  Sigurður er núna inni hjá systir sína að vekja hana með fallegum kossi.  Ég er að spá í að henda mér í sturtu og fara svo með krakkana út í göngutúr, sjá hvort það séu ekki einhverjar svangar endur í grasagarðinum. Fara þær kannski allar suður á veturna???  Veit ekki, kemur í ljós. Læt ykkur kannski vita, þá þurfið þið ekki að gá. Leiter
»
26.10.2008 19:14:45 / Silla
... eru heví fljót að líða.  Við Denni eigum 6 ára brúðkaupsafmæli í dag.  Erum samt ekki að gera neitt spes. Sótti tælenskan mat handa okkur áðan, mmmm.  Hann er æði, sko Denni, en líka maturinn, hehe  Ég var á Grundafirði um helgina, barnlaus og mannlaus.  Það var frænkuhelgi, æði pæði. Amma mín, Elsa systir hennar og dætur þeirra og barnabörn (dætur) Við áttum að vera 9, en 2 beiluðu, össsss, en það var samt mjög gaman. Hitti líka Valdísi vinkonu mína og komst að því að hún er kona eigi einsömul, ýkt gaman. Hún er sett í lok mars, s.s. í kringum afmælið mitt. Vona bara að það standist, þá verður hún að skíra Sigurlaug ef það er stelpa, allavega Rósa. Mér finnst það allavega, hehe.  Það er kominn 26. október, sem væri oftast æðislegt, því þá er svo stutt í jólin, en núna fæ ég bara hland fyrir hjartað eða kúk í buxurnar, eða ... ÞVÍ ÉG ER EKKI ENN BYRJUÐ Á RITGERÐINNI!!! Sem ég ætti eiginlega að skila í kringum próflok. OMG     En jæja, það þýðir ekki að sitja heima og væla, ritgerðin skrifast ekki að sjálfu sér. Byrja á morgun, lofa, hehe  En í tilefni dagsins: Denni, ég eeeeeeeeeelska þiiiiiiiiiiiiig, mmmmmwwwwwwwwwaaaaaaaaaa (hljóðritaður koss)    Kv. hamingjusama eiginkonan
»
23.10.2008 20:30:09 / Silla
Er þetta ekki bara snilld??? SÓSÍALISMI Þú átt 2 kýr. Þú gefur nágranna þínum aðra þeirra.
KOMMÚNISMI Þú átt 2 kýr. Ríkið tekur þær báðar og gefur þér mjólk.
FASISMI Þú átt 2 kýr. Ríkið tekur þær báðar og selur þér mjólk.
NASISMI Þú átt 2 kýr. Ríkið tekur þær báðar...og skýtur þig svo.
SKRIFRÆÐI Þú átt 2 kýr. Ríkið tekur þær báðar, skýtur aðra þeirra, mjólkar hina og hellir svo allri mjólkinni.
HEFÐBUNDINN KAPÍTALISMI Þú átt 2 kýr. Þú selur aðra þeirra og kaupir naut. Þú stofnar kúabú og hagnast vel. Þú hagnast vel, selur kúabúið og sest í helgan stein
SÚRREALISMI Þú átt 2 gíraffa. Ríkið krefst þess að þú farir í harmonikkunám.
BANDARÍSKA FYRIRTÆKIÐ Þú átt 2 kýr. Þú selur aðra þeirra og þvingar hina til að gefa af sér mjólk á við fjórar kýr. Þú ræður svo sérfræðing til að komast að því hvers vegna hún datt niður dauð.
ÁHÆTTUFJÁRFESTINGAR Þú átt 2 kýr. Þú selur 3 þeirra til fyrirtækis á opnum markaði með veði í gervifyrirtæki mágs þíns, gengur svo frá yfirtöku með vísan í skráningu á markaði þannig að þú færð allar 4 kýrnar tilbaka og skattaívilnanir vegna einnar til viðbótar. Afurðarétturinn af kúnum 6 er færður yfir á fyrirtæki í Karíbahafinu, en leynilegur meirihlutaeigandi þess selur þér aftur réttinn að öllum 7 kúnum. Samkvæmt ársskýrslu á fyrirtækið nú 8 kýr, með eigendarétti að einni til viðbótar. Þú selur eina kú til þess að þóknast ónefndum stjórnmálamanni og átt þá níu kýr. Rétturinn að nautinu er seldur almenningi í hlutafjárútboði.
FRANSKT FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Þú ferð í verkfall, skipuleggur mótmæli og tefur umferð...vegna þess að þú vilt eiga þrjár kýr.
JAPANSKT FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Þú endurhannar þær þannig að þær verða tíu sinnum minni, en framleiða tuttugu sinnum meiri mjólk. Þú markaðssetur svo nýja teiknimyndahetju, „Kúmann“, sem nær miklum vinsældum um allan heim.
ÞÝSKT FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Þú endurhannar þær þannig að þær lifa í 100 ár, éta einu sinni í mánuði og mjólka sig sjálfar.
ÍTALSKT FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Þú veist ekki hvar þær eru niðurkomnar. Þú ákveður að fá þér að borða.
RÚSSNESKT FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Þú telur þær og kemst að því að þú átt 5 kýr. Þú telur þær aftur og kemst að því að þú átt 42 kýr. Þú telur þær enn og aftur og kemst að því að þú átt 2 kýr. Þú hættir að telja og opnar aðra vodkaflösku.
SVISSNESKT FYRIRTÆKI Þú átt 5000 kýr. Engin þeirra tilheyrir þér í raun. Þú rukkar eigendurna fyrir geymsluna.
KÍNVERSKT FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Þú ræður 300 manns til að mjólka þær. Þú segir atvinnuleysi í lágmarki og blómstrandi landbúnað. Þú handtekur fréttmanninn sem sagði frá stöðunni eins og hún er í raun og veru.
INDVERSKT FYRIRTÆKI Þú átt tvær kýr. Þú tilbiður þær.
BRESKT FYRIRTÆKI Þú átt tvær kýr. Báðar eru með gin-og klaufaveiki
ÁSTRALSKT FYRIRTÆKI Þú átt 2 kýr. Bissnessinn gengur vel. Þú lokar skrifstofunni og færð þér nokkra kalda til að halda upp á það.
NÝ-SJÁLENSKT FYRIRTÆKI Þú átt tvær kýr. Sú til vinstri er asskoti löguleg.
ÍRASKT FYRIRTÆKI Allir virðast eiga fjölda kúa. Þú segir öllum að þú eigir enga. Enginn trúir þér svo þeir sprengja þig í tætlur og ráðast inn í landið. Þú átt enn engar kýr, en þú býrð þó amk í lýðræðisríki núna...
Hahahahaha  
»
Síður: 1 2 3 ... 15
|
Heimsóknir
Í dag: 5 Alls: 103068
Talning
Fyrir 491 dögum
Ég verð 30 ára
|